Hestamannafélagið Sóti    
  • Frettir
  • Felagid
    • Fundargerdir
    • Vetrardagskrá
  • Stjorn og nefndir
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi
  • Frettir
  • Felagid
    • Fundargerdir
    • Vetrardagskrá
  • Stjorn og nefndir
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi

Reiðnámskeið

4/29/2014

0 Comments

 
Enn er hægt að skrá sig á reiðnámskeið barna :

Skráning er hafin á reiðnámskeið fyrir polla, börn og unglinga. Námskeiðið er 6 skipti og hefst sunnudaginn 4. maí. Kennt verður 4., 10., 11. 17., 18. og 25. maí. Kennari er Karen Emilía Woodrow og námskeiðið kostar einungis 4.000 fyrir hvert barn. Skráningar óskast í tölvupósti á netfangið hestamannafelagidsoti@gmail.com

Æskulýðsnefnd

0 Comments

Sýnikennsla Harðar og FT

4/28/2014

0 Comments

 
Hörður og FT-suður bjóða til sýnikennslu í reiðhöll Harðar !

FT-Suður stendur fyrir skemmtilegri og léttri sýnikennslu á miðvikudaginn 30. apríl næstkomandi. Félagið langar að bjóða öllum börnum og unglingum í æskulýðsdeildum hestamannafélaga á sýnunguna. Þrír útskrifaðir reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum munu sýna leiðina að mýkt og léttleika, þær Christina Mai, Sina Scholz og Sjöfn Sæmundsdóttir.

Frábært tækifæri fyrir yngri kynslóðina að eiga góða stund saman!:)

Sýnikennslan hefst klukkan 19.30 og verður kaffisala á staðnum.

0 Comments

Íþróttamót Sóta

4/26/2014

0 Comments

 
Íþróttamót Hestamannafélagsins Sóta verður haldið á velli félagsins laugardaginn 03. maí og hefst mótið kl. 11:00.

Keppt verður í:

Barnaflokki                                     
Tölti T3 og Fjórgangi  V2

Unglingaflokki                                 
Tölti T3 og Fjórgangi  V2

Ungmennaflokki                               
Tölti T3, Fjórgangi V2 og  Fimmgangi F2

1. flokkur fullorðinna                       
Tölti T3, Tölti T2,
Fjórgangi V2 og Fimmgangi F2

Skráning fer fram á www.sportfengur.com, undir skráningarkerfi.   Þar  skal velja hestamannafélagið Sóti og svo velja viðburðinn . Þegar búið er að fylla inn upplýsingar og skrá í vörukörfu þarf að smella á vörukörfuna til að fara í greiðslukerfið. Þegar greiðslu er lokið ætti kvittun að berast með tölvupósti og staðfestir hún skráninguna. Ath einungis er hægt að greiða með millifærslu á reikning 1101-26-111139 kt:  680296-3409 og sendið kvittun á netfangið arnari@internet.is skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla berst.

Skráningu lýkur þriðjudagskvoldið 29. Apríl kl. 23:59

Skráningagjöld eru 3.000,- kr  í  1. flokki fullorðinna á hverja skráningu en 1.500,- kr í  barna-, unglinga- og ungmennaflokki.

Rétt er að benda á að einungis skuldlausir félagsmenn hafa keppnisrétt

Koma svo!  Allir með og höfum gaman af.

Mótanefnd Sóta

0 Comments

Keppnisnámskeið æskulýðsnefndar !

4/25/2014

0 Comments

 
 Enn er hægt að skrá sig á keppnisnámskeið fyrir íþróttakeppnina sem verður haldin 2.maí.
Um 2 skipti er að ræða og mun Atli fara yfir keppnisprógrammið með hverjum fyrir sig og verður fyrri tíminn á sunnudaginn og sá seinni seinnipartinn á mánudag.
Nánari tímasetning ákveðin með þátttakendum.

Æskulýðsnefnd

0 Comments

Ratleikur..

4/23/2014

0 Comments

 
Kæru Sótafélagar.

Þar sem sumarið er að koma á nesið fagra þá er komið að hinum stórkostlega ratleik okkar í Sóta.
Sumardaginn fyrsta þann 24. apríl kl. 12 er mæting í félagshús og mun ratleikurinn vera með svipuðu sniði og áður en þó með breyttum áherslum
Æskilegt er að þátttakendur komi með myndavélar, allavega partur af þátttakendum.

Gott væri að vita fjölda svo að skipulagning gangi betur.
Skráning fer því fram í netfanginu haraldur@aikman.is eða í athugasemd hér að neðan.. : >

Það verða svo veitingar að leik loknum.

Hlökkum til að sjá ykkur öll og fleiri til..

Sumarkveðja

Skemmtinefndin
0 Comments

Bikarkeppni LH aflýst.

4/22/2014

0 Comments

 
Vegna dræmrar skráningar hefur Bikarkeppni LH verið aflýst. LH þakkar þeim sem skráðu sig auðsýndan áhuga og framtakssemi. Bikarkeppni LH kemst án efa á laggirnar á næsta ári og biðjum við þá áhugasama að sýna áhuga sinn í verki og vera með.

Þeir þátttakendur sem höfðu skráð sig fá að sjálfsögðu skráningargjöld sín endurgreidd og þurfa einungis að hafa samband við skrifstofu LH í síma 514-4030 eða senda tölvupóst á netfangið hilda@landsmot.is.

Stjórn LH

0 Comments

Reiðnámskeið æskulýðsnefndar

4/22/2014

0 Comments

 
Skráning er hafin á reiðnámskeið fyrir polla, börn og unglinga. Námskeiðið er 6 skipti og hefst sunnudaginn 4. maí. Kennt verður 4., 10., 11. 17., 18. og 25. maí. Kennari er Karen Emilía Woodrow og námskeiðið kostar einungis 4.000 fyrir hvert barn. Skráningar óskast í tölvupósti á netfangið hestamannafelagidsoti@gmail.com

Einnig er stefnt að keppnisþjálfunarnámskeiði og verður það auglýst fljótlega.

Æskulýðsnefnd
0 Comments

Óvissuferð frestað

4/22/2014

0 Comments

 
Æskulýðsnefnd harmar að tilkynna að því miður verður ekki farið í fyrirhugaða óvissuferð næstkomandi föstudag eins og gert var ráð fyrir. Ferðinni verður frestað þar til í haust og nánari dagsetning auglýst fljótlega.

Aftur á móti verður smá sárabót og æskulýðsnefnd vill bjóða kátum Sótakrökkum í bíó föstudaginn 25. apríl á RÍÓ 2 kl. 17:50, brottför frá Félagsheimili kl. 17:15. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í síðasta lagi fyrir kl. 20, fimmtudaginn 24. apríl. Hægt er að skrá hér fyrir neðan í athugasemdir eða senda tölvupóst á hestamannafelagidsoti@gmail.com.
0 Comments

Tilkynning frá Mótanefnd - 14. apríl

4/15/2014

0 Comments

 
Bikarkeppni LH - Langar þig að keppa fyrir hönd Sörla og Sóta?

Bikarkeppni LH mun fara fram 23. – 24. apríl næstkomandi í reiðhöllum hestamannafélaganna Fáks og Spretts.
Fyrri daginn verður forkeppni á báðum stöðum en seinni daginn munu öll úrslit fara fram í nýrri glæsilegri reiðhöll Spretts. Keppt verður í T3, V2 og F2 í fullorðins-, og ungmenna- og unglingaflokki.
Keppt verður eftir lögum og reglum LH. A-úrslit verða í öllum flokkum og einnig B-úrslit þar sem þátttakendur í forkeppni eru 20 eða fleiri. Sigurvegari hverrar greinar í hverjum flokki hlýtur titilinn Bikarmeistari 2014.

Við leitum að 4 keppendum til að taka þátt í Tölti - T3, Fjórgang - V2 og Fimmgang - V2 í unglingaflokki, ungmennaflokki og fullorðinsflokki. Sóti hefur 1 keppanda í hverjum flokk ef næg þáttaka fæst.  Ef næg næst ekki, mun Sörli reyna að fylla það skarð.

Þeir sem hafa áhuga á að keppa eru beðnir um að senda okkur póst með upplýsingum um nafn, kennitölu, nafn á hesti og IS númer á motanefndsorla@gmail.com í síðasta lagi á miðvikudag 16. apríl nk. Einnig er hægt að hringja í síma 821-4493 og 690-5098. Mótanefndir Sörla og Sóta munu svo velja knapa og hesta sem sækja til að keppa fyrir hönd félagana.

Með kveðju
Mótanefndir Sörla og Sóta.

0 Comments

Firmakeppni Sóta / Minningarmót Ása og Önnu - Úrslit

4/12/2014

0 Comments

 
Firmakeppni Sóta / Minningarmót Ása og Önnu fór vel fram á velli félagsins í gær, þrátt fyrir slæmt veðurútlit og fremur litar skráningar í nokkrum flokkum. Gaman hefði verið að sjá fleiri keppendur en áhorfendur voru margir, sem var gaman! Firmanefndin náði að safna á milli 650-700 þúsund, sem er frábær árangur. Úrslit fóru þannig:

Pollaflokkur teymdir (lang fjölmennasti flokkurinn!) Ekki raðað í sæti
Steypustöðin - Steinunn Marín Einarsdóttir, 7 ára - Hera frá Tunguhálsi 2
Íspan - Vigdís Rán Jónsdóttir, 5 ára - Baugur frá Holtsmúla
Verkþing - Jörundur Óli Arnarsson, 3 ára - Perla frá Gili
Málning - Fanney Lísa, 4 ára - Hylling frá Gili
Orkulagnir - Kristófer Róman Kolbeins, 8 ára - Hrímfaxi
Ásbjörn Ólafsson - Klemenz Fannar Klemensson, 8 ára - Brekka
Iðnmark - Árný Björk Einarsdóttir, 4 ára - Kolnussa frá Hafnarfirði
Loftorka - Þórdís Einarsdóttir, 6 ára - Aþena frá Hafnarfirði
Bílaverkst Högna - Ívar Orri Klemensson, 6 ára - Þröstur frá Laugardal

Barnaflokkur
1. Vatn og Veitur - Patrekur Örn Arnarsson - Perla frá Gili

Unglingaflokkur
1. Húsasmiðjan - Ingibjört Rut Einarsdóttir - Kvistur frá Álfhólum
2. Byko - Margrét Lóa Björnsdóttir - Íslands-Blesi

Kvennaflokkur
1. Tölthólar - Bryndís Einarsdóttir - Aþena frá Hafnarfirði
2. Hárlaugsstaðir - Elfur E. Harðardóttir - Frami frá Útverkum

Karlaflokkur
1. Fjörukráin - Arnar Ingi Lúðvíksson - Eir frá Búðardal
2. Tophorses - Jörundur Jökulsson - Prestur frá Kirkjubæ
3. Íshestar Travel - Jóhann Þór Kolbeins -
4. Kraftvélar - Sigurjón Einar - Doddi frá Sveinskoti

Glæsilegasta parið: Arnar Ingi á Eir frá Búðardal

Kærar þakkir til allra sem komu að mótinu, keppendur, starfsmenn, dómari og fjáröflunarnefnd

0 Comments
<<Previous
    Picture

    Sóti

    Við Breiðumýri
    225 Álftanes
    Sími formanns/ Jörundur 
    s:898-2088
    hestamannafelagidsoti@gmail.com
    www.soti.is

    Senda inn efni
    Gerast félagi í sóta
    Facebooksíða Sóta
    Picture
    Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi elfure@simnet.is.
    Picture

    RSS Feed




    Eldri fréttir

    January 2021
    December 2020
    October 2020
    September 2020
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    October 2014
    September 2014
    July 2014
    June 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    September 2013
    August 2013
    May 2013
    April 2013
    March 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    August 2012
    July 2012
    June 2012
    May 2012
    April 2012
    March 2012
    February 2012
    January 2012
    December 2011

Powered by Create your own unique website with customizable templates.