![]() Æskulýðsnefnd Sóta ætlar að endurtaka leikinn frá í fyrra og bjóða uppá fjöru skemmtun að hætti Sóta félaga, fimmtudaginn 30 maí. Lagt verður af stað frá félagshúsi stundvíslega kl. 17:30. Riðið verður út í fjöruna við Haukshús þar sem verður farið í leiki og sundriðið fyrir þá sem þora. Á eftir verður boðið uppá grillmat í félagshúsinu og skemmtun fyrir börnin. Vegna sameiningar Álftaness og Garðabæjar eru Sprettarar boðnir sérstaklega velkomnir með okkur. Eitthvað fyrir alla, líka börn sem ekki eru ríðandi, bara koma í fjöruna og leika saman. Gott að koma með fötur og skóflur þar sem farið verður í kastalakeppni. Allir að leggjast á bæn að veðrið verði gott og koma svo! Kveðja Æskulýðsnefnd
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi elfure@simnet.is.
April 2021
|